Guli Miðinn C-1000 60 töflur
1.490 kr.
Hlutverk C-vítamíns til viðhalds heilbrigði líkamans er margþætt. Það hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndun bandvefs, er stór þáttur í vexti og heilbrigði æða, beina, góms og tanna ásamt því að auka frásog járns. C-vítamín hjálpar sárum að gróa og eykur viðnám líkamans gegn sýkingum. Líkaminn þarfnast aukins C-vítamíns þegar hann er undir andlegu eða líkamlegu álagi. C-vítamín er sindurvari (andoxunarefni) þ. e. ver frumur líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda, en það eru úrfellingarefni sem verða til við efnaskipti í líkamanum, C vítamín er gott fyrir húðina og hjálpar til við að halda henni heilbrigðri.
Innihald í 1 töflu:
C vítamín (ascorbic acid) 1000mg, rútín (úr fava baunum), bioflavoníðar (sítrus bíoflavoníða komplex).
Önnur innihaldsefni:
Microcrystalline cellulose, dicalcium phosphate, croscarmellose sodium, stearic acid, rósaber, shellac, silicon dioxide, calcium stearate, talkúm, karób.