Til baka
Calm Magnesíum með kirsjuberjabragði 226gr
Ráðlögð notkun:
1-3 tsk á dag – gott að byrja á 1 tsk og hækka skammtinn smátt og smátt eftir þörfum
Gott að taka á kvöldin til að sofa betur en má taka hvenær sem er dagsins
Best að blanda við sjóðand vatn – setja duftið í bolla, hella smá heitu yfir og láta duftið freyða og leysast alveg upp, hella því næst meira vatni (heitu eða köldu) og drekka
Athugið: Getur valdið niðurgangi í háum skömmtum
3.990 kr.
Magnesíum hefur mörgum hlutverkum að gegna í líkamanum. Það kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum og því ákaflega mikilvægt til þess að öll líkamskerfi geti starfað rétt. Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna:
- Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun
- Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun
- Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans
- Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi hjarta og æðakerfis – spilar t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi
- Mjög mikilvægt fyrir beinheilsu – nauðsynlegt til að tryggja eðlilega beinþéttni og endurnýjun beina
blandist í vatn 2 teskeiðar