Diklofenak Apofri
11,6 mg/g - 100 g - Hlaup
1.953 kr.
Til meðferðar við einkennum vægs til miðlungi mikils, staðbundins verks í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið, t.d. íþróttameiðsli. Diclofenac er bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri, með verkjastillandi, bólgueyðandi og hitalækkandi eiginleika. Hömlun á nýmyndun prostaglandína er aðal verkunarháttur diclofenacs.
Diklofenak Apofri er aðeins ráðlagt til notkunar á húð.
Fullorðnir og börn, 14 ára og eldri: Diklofenak Apofri hlaup er borið á sárt og bólgið svæði 3 til 4 sinnum á dag og er nuddað varlega inn í húðina. Magn hlaupsins fer eftir stærð viðkomandi svæðis. 2 til 4 g af Diklofenak Apofri (sem samsvarar 6-12 cm af hlaupi) nægja til að meðhöndla svæði sem er 400-800 cm2 . Hámarks dagskammtur er 16 g af hlaupi. Börn og unglingar:
Ekki skal nota Diklofenak Apofri fyrir börn og unglinga yngri en 14 ára.
Virkt efni: Diclofenac tvíetýlamíni. Hjálparefni með þekkta verkun: Própýlenglýkól.
Frekari upplýsingar
Form | |
---|---|
Styrkur | |
Magn | |
Heiti Innihaldsefnis | |
Merking |
Get ég aðstoðað?