Til baka

Lyngonia

60 stk - Filmuhúðaðar töflur

Lyngonia er einstök meðferð án sýklalyfja til meðhöndlunar á vægri endurtekinni þvagfæarasýkingu kvenna

5.390 kr.

vnr: 127403

Lyngonia er jurtalyf til meðferðar á einkennum vægrar, endurtekinnar sýkingar í neðri hluta þvagfæra, svo sem brunatilfinningu við þvaglát og/eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Þetta lyf er jurtalyf sem hefð er fyrir og tilgreinda ábendingin fyrir notkun þess er eingöngu byggð á langri sögu um notkun lyfsins. Framleitt af Florealis.

Fullorðnar konur: 2 töflur 2-4 sinnum á dag

Notið ekki lengur en viku. Hafið samband við lækni eða heilbrigðisstarfsmann ef einkenni versna eða eru viðvarandi í meira en 4 daga. Notið ekki ef truflun á nýrnastarfsemi er þekkt. Ekki ætlað yngri en 18 ára, körlum, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.

Hver tafla inniheldur 361-509 mg af útdrætti úr sortulyngslaufum (Arctostaphylos uva-ursi), sem jafngildir 105 mg af hýdrókínónafleiðu reiknað sem vatnsfrítt arbútín

Frekari upplýsingar

Form

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking