Otrivin ukonserveret
1 mg/ml - 10 ml - Nefúði
953 kr.
Otrivin er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í bólginni slímhúð nefsins. Við það minnkar stíflan í nefinu og loftstreymið um nefið batnar. Verkun hefst eftir fáeinar mínútur og varir í allt að 12 klukkustundir.
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára:
1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, að hámarki í 10 sólarhringa. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Notkunarleiðbeiningar:
Snýttu þér ávallt áður en þú notar nefúðann.
Fyrir fyrstu notkun þarf að virkja úðadæluna með því að úða 4 sinnum út í loftið. Eftir það er úðadælan jafnan tilbúin til daglegrar notkunar á meðferðartíma. Haltu flöskunni lóðrétt.
Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Haltu fyrir aðra nösina með fingrinum. Settu stútinn á nefúðaflöskunni í hina nösina. Ýttu hratt á úðadæluna um leið og þú andar inn um nefið.
Endurtaktu þetta í hina nösina.
Frekari upplýsingar
Form | |
---|---|
Styrkur | |
Magn | |
Heiti Innihaldsefnis | |
Merking |
Get ég aðstoðað?