Paradorm
525 mg - 10 stk - Filmuhúðaðar töflur
750 kr.
Vara væntanleg
Paradorm inniheldur 2 virk innihaldsefni, paracetamól og dífenhýdramín. Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi lyf sem hentar við verkjum sé engin bólga fyrir og er einnig notað til að slá á sótthita. Dífenhýdramín er andhistamín sem veldur syfju og svefnhöfga. Paradorm hentar því vel til notkunar við verkjum sem halda manni vöku s.s. höfuðverk, tannpínu, bakverk, gigtar- og vöðvaverk, og verkjum sem fylgja kvefi og flensu. Lyfið ertir ekki magaslímhúð og hentar þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga.
Fullorðnir og unglingar 16 ára og eldri: 2 töflur um það bil 20 mín fyrir svefn. 12-15 ára: 1 tafla um það bil 20 mín fyrir svefn. Ekki má taka lyfið í meira en 7 daga samfleitt án samráðs við lækni. Ef þú hefur tekið annað lyf sem inniheldur paracetamól (t.d. Panodil/Paratabs/Norgesic) þarf að líða að minnsta kosti 4 klst áður en lyfið er tekið.
Frekari upplýsingar
Form | |
---|---|
Styrkur | |
Magn | |
Heiti Innihaldsefnis | |
Merking |
Get ég aðstoðað?